KLARA
Peintre
Professionnel
Autres oeuvres (42) - Vente en ligne (32)
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
K Y N N I N G :
Ég er fædd á Íslandi árið 1965. Ég ólst upp í foreldrahúsum í Garðabæ og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Garðabæjar. Um tíma stundaði ég nám í Þýskalandi og lauk svo BA námi í stjórnmálafræði og ensku frá Háskóla Íslands. Að námi loknu stundaði ég ýmis störf tengd námi mínu bæði á Íslandi og í Evrópu og sótti jafnframt ýmis námskeið í myndlist.
Árið 2000 fluttist ég til Bretaigne í Frakklandi þar sem ég bý ásamt eiginmanni og þremur börnum. Árið 2007 tók ég svo í notkun nýja vinnustofu og sneri mér alfarið að myndlistinni. Ég hef verið með nokkrar einkasýningar í Frakklandi og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og á Íslandi hef eg haldið tvær einkasyningar. A Islandi eru verk eftir mig til sölu hjá "L51-ART CENTER" í Reykjavík og hjá Fasteignasölunni TORG í Garðabæ, þar sem einnig er hægt að fá nánari upplýsingar um verk mín og störf.
Í verkum minum nota ég akríl málningu og blandaða tækni. Viðfangsefni mitt er oft íslenska náttúran sem gefur mér endalausan innblástur enda er hún engu lík.
Ég tek á móti fólki og sýni verk mín einnig á vinnustofu minni i Frakklandi alla virka daga eða eftir samkomulagi. Á heimasíðu minni eru nánari upplysingar og einnig hægt að skoða fleiri myndir af verkum mínum. Ég mála einnig gjarnan eftir pöntun og óskum kaupenda. Ef óskað er eftir sendi ég málverk í pósti til Íslands og eða annarra landa. Allar nánari upplýsingar veiti ég fúslega i sima eða gegnum tölvupóst.
Klara GUNNLAUGSDOTTIR-LUCAS
Listmálari
KLARA er íslenskur listmálari sem málar mjög sérstakar myndir. Ég hef fylgst með vinnu hennar og verkum í nokkurn tíma og finnst mér hæfileikar hennar til myndsköpunar mjög athyglisverðir svo og hversu myndir hennar eru nýstárlegar. Í myndum hennar má skynja íslenska dulúð sem hún túlkar af mikilli næmni. Kraftur elds og vatns kemur fram í myndverkum hennar sem fagurt andvarp eða hróp. Hún er framtíðar listamaður og verk hennar verða að koma fram hratt og skipulega til þess að hún nái að komast alla leið.
Denis BERMOND, Peintre Officiel de l'Armée
Myndverk KLÖRU eru unnin úr ýmsum efnum. Nefna má m.a. sand og stein blandað við acrílmálningu. Myndir hennar leiða okkur að sérstökum einkennum heimalands hennar Íslands. Þar sem blandast ís og eldur, skær birta himinsins og dökkur litur hraunbreiðanna. Segja má að allt litróf listar hennar sé bæði óhlutrænt og myndauðugt . Í sumum myndanna má finna bókstafi og stuttar setningar á íslensku og frönsku. Stafirnir og orðin tengja tvo menningarheima á sérstakan hátt í höndum listamannsins þannig að úr verður spennandi blanda. Sérkennilegt samræmi kemur fram í verkum hennar, sem einlægni og ró hvíla yfir, líkt og þegar horft er út á sjóinn frá strönd Belle– Ile eða horft yfir endalausa víðáttu öræfa Íslands.
Patrick DEMELLIER, Gérant de "Un Temps pour l'Art"